Ráðgátan um ljósfráu fiseindirnar leyst?

Í september í fyrra bárust fregnir af því að eðlisfræðingar við OPERA samstarfið í Gran Sasso rannsóknarstöðinni á Ítalíu hefðu mælt ljósfráar fiseindir. Fiseindirnar voru sendar 730 km vegalengd frá CERN í Genf í Sviss til Ítalíu og virtust berast til rannsóknarstöðvarinnar 60 nanósekúndum hraðar en ljósið. Flestir eðlisfræðingar voru mjög efins um niðurstöðurnar, jafnvel þótt tilraunin virtist traust, enda bryti hún í bága við einn af hornsteinum nútíma eðlisfræði, takmörkuðu afstæðiskenningu Einsteins, sem hefur verið staðfest margoft í gegnum tíðina.

Í dag birtist yfirlýsing frá OPERA samstarfinu þar sem tvær tilgátur eru settar fram til að skýra ljósfráu fiseindirnar. Báðar tengjast þær því hvernig tilraunin var sett upp og notkun á GPS merkjum til að samstilla atómklukkur á sitthvorum enda fiseindageislans. Annars vegar er mögulegt að samstilling GPS merkjanna og klukknanna hafi ekki verið útfærð á réttan hátt og hins vegar að galli hafi verið í ljósleiðarateningunni milli móðurtölvunnar og GPS móttakarans. Þetta er í fyrsta sinn sem GPS merki eru notuð í tilraun sem þessari og því grunaði marga eðlisfræðinga að þau væru rót vandans.

Eftir að tengingarnar höfðu verið lagfærðar var tíminn sem það tekur gögnin að ferðast eftir lengd ljósleiðarans mældur og komust þá eðlisfræðingarnir að því að gögnin bárust 60 nanósekúndum fyrr en gert var ráð fyrir. Þegar þessi ferðatími er dreginn frá heildarferðatímanum útskýrir hann hvers vegna fiseindirnar virtust ferðast hraðar en ljósið.

Afla þarf frekari gagna til að staðfesta aðra hvora tilgátuna, eða jafnvel báðar. Í maí á þessu ári verður það gert þegar annarri fiseindagusu verður dembt yfir Gran Sasso rannsóknastofuna.

Á sama tíma halda eðlisfræðingar í MINOS samstarfinu í Fermilab í Bandaríkjunum áfram að gera eigin mælingar á hraða fiseinda. Búist er við niðurstöðum frá þeim síðar á árinu.

via ScienceInsider og NatureNews

- Sævar Helgi 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband