31.1.2010 | 14:49
Stjörnukort fyrir Ísland í febrúar
Við höfum sett upp stjörnukort sem sýnir næturhimininn yfir Íslandi á milli kl. níu og tíu á kvöldin í febrúar. Á kortinu má finna reikistjörnurnar sem sjást á kvöldin, stjörnumerkin og áhugaverð fyrirbæri. Þessu til viðbótar fylgir leiðarvísir um stjörnuhimininn fyrir byrjendur í stjörnuskoðun.
Hér er stjörnukortið ásamt leiðarvísi á Stjörnufræðivefnum
Annars er margt að sjá á næturhimninum í febrúar. Veiðimaðurinn Óríon fer fremstur í flokki stjörnumerkjanna en hann er auðþekktur á stjörnunum í beltinu sem eru yfirleitt nefndar Fjósakonurnar. Stjarnan Betelgás í öxl Óríons myndar Vetrarþríhyrninginn ásamt stjörnunum Síríus og Prókýon. Reikistjarnan Mars skín skært í austri á kvöldin og skömmu fyrir miðnætti rís Satúrnus upp á himininn en hringar hans sjást í litlum stjörnusjónauka.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 15:00 | Facebook
Athugasemdir
Þið eruð algerir snillingar!
Gísli Ingvarsson, 31.1.2010 kl. 21:26
Það er engin spurning!
Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 3.2.2010 kl. 12:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.