Vá! Jólaglaðningur frá Cassini!

Í gær birtu vísindamenn við Cassini leiðangurinn alveg hreint stórfenglegar myndir af Satúrnusi og Títan.

6783_16772_1.jpg

Mynd: NASA/JPL-Caltech/Space Science Institute

Þetta er an nokkurs vafa einhver fallegasta mynd sem ég hef séð af Satúrnusi!

Í bakgrunni sést gulleitur lofthjúpur reikistjörnunnar og örmjóir hringarnir sem varpa breiðum skuggum á suðurhvelið. Í forgrunni er Títan, stærsta tungl Satúrnusar, en á bakvið það er íshnötturinn Díóna, þriðja stærsta tungl Hringadróttins, fimm sinnum minna en Títan. Ef rýnt er í myndina sést norðurpólhettan sem er úr ískristöllum hátt í þykkum lofthjúpi Títans og móðan sem umlykur tunglið. 

Cassini geimfarið var í um það bil 2,3 milljón km fjarlægð frá Títan og 3,2 milljón km fjarlægð frá Díónu þegar myndin var tekin.

6782_16762_1.jpg

Mynd: NASA/JPL-Caltech/Space Science Institute

Þessar ótrúlega fallegu myndir koma fast á hæla myndanna af halastjörnunni Lovejoy, sem við fjölluðum um í gær. Og enn og aftur blótum við því að við séum búnir að velja tíu fallegustu myndir ársins. Þessar hefðu nefnilega vel á heima á þeim lista!

- Sævar Helgi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

er að skrá mig í fyrsts sinn

Guðný Erna Þórarinsdóttir (IP-tala skráð) 23.12.2011 kl. 16:51

2 identicon

Báðar eru þær stórkostlegar. Hrein listaverk.

Jóhann (IP-tala skráð) 23.12.2011 kl. 22:33

3 identicon

Stórkostlegar myndir, önnur var strax sett sem bakgrunnsmynd :)

Þórhallur (IP-tala skráð) 24.12.2011 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband