27.12.2011 | 18:42
Glæsileg myndskeið af halastjörnunni Lovejoy
Við sögðum nýverið frá halastjörnunni Lovejoy. Sú hefur sett aldeilis fallega sýningu á svið fyrir íbúa á suðurhveli jarðar síðustu daga. Lovejoy er sólkær halastjarna sem þýðir að braut hennar liggur mjög nálægt sólinni. Hún fannst í lok nóvember en þetta er í fyrsta í sinn í 40 ár sem sólkær halastjarna finnst af jörðu niðri. Flestar halastjörnur af þessu tagi finnast á myndum SOHO gervitunglinu sem fylgist stöðugt með sólinni.
Nú hafa birst tvo stórkostleg myndskeið af halastjörnunni yfir Chile. Hið fyrra var birt á aðfangadag og var tekið af stjörnufræðingi sem starfar við stærstu sjónauka jarðar í Paranal stjörnustöð ESO:
Comet Lovejoy from the VLT, Chile from Gabe Brammer on Vimeo.
Nánar er hægt að lesa um þetta í frétt ESO http://www.eso.org/public/iceland/news/eso1153/
Seinna myndskeiðið tók Stephane Guisard, sjóntækjafræðingur hjá ESO í Paranal (hafðu stillt á HD og horfðu á fullum skjá):
Comet Lovejoy above the Andes from Stéphane Guisard on Vimeo.
Lovejoy er á fleygiferð burt frá sólinni og dofnar með hverjum deginum sem líður. Halinn, sem er úr ís- og rykögnum sem losna burt af kjarna halastjörnunnar og vísar alltaf frá sólinni, verður sífellt lengri. Þegar myndskeiðið var tekið var halastjarnan í 100 milljón km fjarlægð frá jörðinni!
Vonandi þurfum við ekki að bíða lengri eftir að svona halastjarna prýði norðurhimininn.
- Sævar Helgi
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.