Stjarnvísindi í Tilraunaglasinu á Rás 1

Hvað gerðist markverðast í stjarnvísindum á árinu sem er að líða og hvað er að frétta af íslensku stjörnuáhugafólki?

Vísindaþátturinn Tilraunaglasið var brotinn upp frá hefðbundnu formi með tveimur góðum gestum, Sævari Helga Bragasyni og Þóri Sigurðssyni Báðir eru þeir góðvinir þáttarins, Sævar Helgi formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness og nemi í stjarnvísindum í Svíþjóð, Þórir formaður Stjörnu-Oddafélagsins á Akureyri og þrautreyndur kennari í eðlisfræði og stjörnufræði, bæði við Menntaskólann á Akureyri og Háskólann á Akureyri. Sævar Helgi sagði frá námi sínu í stjörnufræðum, hvernig áhugi hans á stjörnufræði kviknaði í barnæsku og starfsemi Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness þar sem meðal annars er unnið ötullega að því að vekja áhuga barna og unglinga á vísindum. Þórir sagði frá Stjörnu-Odda sem var stjörnuáhugamaður í norðlenskri sveit á tólftu öld og ræddi um Stjörnu-Odda félagið. Síðan var rætt við þá Sævar Helga og Þóri um helstu viðburði ársins sem er að líða, þær uppgötvanir sem lágu að baki Nóbelsverðlaununum í eðlisfræði þetta árið, litið fram á veginn líka og rætt um gildi stjarnvísinda, ekki síst fyrir viðhorf okkar til jarðarinnar sem við byggjum.

Hægt er að hlusta á þáttinn hér http://www.ruv.is/sarpurinn/tilraunaglasid/30122011

Og svo er um að gera að láta sér líka við þáttinn á Facebook

- Sævar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband