16.1.2012 | 05:52
Fyrirlestur um stjörnuskoðun að vori á Náttúrufræðistofnun
Miðvikudaginn 18. janúar flytur Sverrir Guðmundsson fyrirlestur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands sem nefnist:
Stjörnuskoðun að vori
Eins og nafnið gefur til kynna mun Sverrir segja frá nokkrum fyrirbærum og stjörnumerkjum sem sjást vel á vorin, svo sem Sjöstirninu, Karlsvagninum í Stórabirni og veiðimanninum Óríon. Einnig mun hann segja frá reikistjörnunum sem sjást á himninum en í vor er óvenjugott að skoða reikistjörnur. Nú ber mest á Venusi og Júpíter en í mars mun Mars verða áberandi á næturhimninum með áberandi appelsínugula slikju yfir sér.
Hér er vefslóð á kynningu á fyrirlestrinum á vefsíðu Náttúrufræðistofnunar.
Merkúr, Venus og Júpíter á vesturhimni 27. febrúar 2012. Mynd úr stjörnufræðiforritinu Stellarium (sem er bæði ókeypis og á íslensku).
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.