7.8.2012 | 08:36
Fyrsta litmyndin frá Curiosity
Við sögðum frá því í gær að fyrsta litmyndin frá Curiosity væri væntanleg frá MAHLI smásjármyndavélinni í jeppanum. Hér er hún komin:
Myndin er fremur óskýr vegna þess að hún er tekin í gegnum gegnsætt hlífðarlok á myndavélinni. Ekki veitti af því að hafa þessi lok á myndavélum jeppans, því mikið ryk þyrlaðist upp við lendinguna sem settist á lokin. Myndinni hefur verið snúið 30 gráður miðað við skrokk jeppans því ekki er búið að reisa við arminn sem hún er á. Horft er að gígbarminum sem er í 28 km fjarlægð frá jeppanum.
MAHLI eða Mars Hand Lens Imager er smásjá eða eiginlega lúpa, eitt mikilvægasta tæki jarðfræðingsins, á Mars. Með lúpunni fáum við nærmyndir í hárri upplausn af bergi og jarðvegi í feltinu.
Í gær voru einnig birtar myndir frá MARDI myndavélinni sem er undir jeppanum en hún tók myndir þegar jeppinn kom inn til lendingar. Sú vél tók 4,5 ramma á sekúndu í háskerpu eða með 1600x1200 pixla upplausn. Við fáum að sjá myndirnar í fullri upplausn innan tíðar en látum okkur nægja eitt skot á meðan sem sýnir hitaskjöldinn falla burt. Hann er í um 15 metra fjarlægð þegar þessi mynd var tekin.
Mynd: NASA/JPL-Caltech/MSSS
Þetta skot sýnir svo rykið þyrlast upp þegar jeppinn hékk í krananum í um 20 metra hæð.
Mynd: NASA/JPL-Caltech/MSSS
Í nótt var unnið að því að ræsa jeppann, kveikja á fjarskiptatækjunum og fleira. Fyrsta panoramamyndin er væntanleg eftir fáeina daga.
- Sævar Helgi
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Þvílíkt afrek....
Guðjón Emil Arngrímsson, 7.8.2012 kl. 13:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.