8.8.2012 | 18:21
Curiosity stingur upp kollinum og lítur í kringum sig
Í nótt að okkar tíma var myndavélamastur Curiosity reist við og myndir teknar með Navcam myndavélunum (þær eru tvær hlið við hlið svo hægt sé að útbúa þrívíddarmyndir). Byrjum á þessari samsettu víðmynd:
Mynd: NASA/JPL/James Canvin
Hér er horft norður að gígbarminum sem er um 20 km í burtu. Þessi hluti gígsins er lægri en suðurhlutinn því hann snýr að láglendinu í norðri, að Elysium eldfjallasvæðinu. Þetta eru tignarleg fjöll, sveipuð mistri og ryki. Við höfum aldrei áður heimsótt svona svæði á Mars en samt er það svo ótrúlega kunnuglegt. Myndin gæti allt eins hafa verið tekin á Sprengisandi eða Möðrudalsöræfum. Á Íslandi er ótrúlega margt sem minnir á yfirborð Mars og öfugt!
Aurkeilan sem jeppinn situr á myndaðist þegar vatn streymdi frá þessum fjöllum og bar með sér set. Steinarnir allt í kring eiga því rætur að rekja þangað.
Fremst sjást tveir blettir hvor um hálfur metri á breidd af völdum eldflaugakranans. Á krananum voru átta túður eða eldflaugar í fjórum pörum. Útblástur eldflauganna hefur feykt burt efni svo það glittir í berggrunninn undir en Curiosity er einmitt ætlað að rannsaka hann. Þar fyrir aftan er lægð sem verður skoðuð betur.
Þessi mynd sýnir skuggann af myndavélamastri og hluta tækjaarms Curiosity. Merkið á arminum er QR kóði sem hægt verður að skanna með snjallsíma til að nálgast upplýsingar síðar í leiðangrinum. Mynd: NASA/JPL-Caltech
Kjarnaofninn í jeppanum framleiðir meiri orku en búist var við sem eru vitaskuld góðar fréttir. Veðurmælingartækið REMS er komið í lag eftir smá hiksta og hefur gagnaöflun í nótt. Í nótt verður líka byrjað á að taka 360 gráðu víðmyndina í lit með MastCam, aðalmyndavélinni. Hana hlökkum við mikið til að sjá!
- Sævar Helgi
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 18:23 | Facebook
Athugasemdir
Þakka ykkur fyrir frábært framtak. Það hefur verið einstaklega skemmtilegt að fylgjast með bloggi ykkar hér um ferðalag Curiosity. Skemmtilegar auðskyljanlegar skýringar ykkar um tilurð og ferðalag jeppans til Mars og svo núna stöðugar fréttir af lendingunni og fyrstu skrefum hans á plánetunni, hafa verið einstaklega skemmtilegar og fróðlegar.
Vonandi verður áframhald á ykkar fróðlega og skemmtilega bloggi sem lengst.
Takk kærlega!!
Gunnar Heiðarsson, 8.8.2012 kl. 20:32
Sammála Gunnari.
Spennandi tímar og mig hlakka til að sjá 360 gráðu víðmyndina í lit líka.
Reyndar búinn að hlakka mikið eftir að fá þessar fréttir hingað og skoða þessar myndir sem eru komnar.
Blogsíðan komin í bókamerkið ásamt fleirum eins og stjörnufræðivefurinn.
Alveg magnað dæmi.
Takk kærlega fyrir þetta. Þið eruð að gera góða hluti hérna.
Hólmar Eyfjörð Hreggviðsson (IP-tala skráð) 8.8.2012 kl. 22:16
Ég þakka hrósið! Það er ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með þessum leiðangri og því verður haldið áfram.
Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 9.8.2012 kl. 11:30
Gott blogg hjá þér (ykkur) hvað er hitastigið þarna? og er afdráttaraflið meira eða minna enn hér á jörðini???
Eggert Gudmundsson (IP-tala skráð) 9.8.2012 kl. 13:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.