19.9.2012 | 12:57
Horft til himins í kvöld og námskeið í stjörnufræði
Veðurspáin er góð fyrir kvöldið og það þýðir bara eitt: Stjörnuskoðun.
Það er ýmislegt að sjá á kvöldhimninum þessa dagana. Við sólsetur má sjá vaxandi sigðarlaga tungl lágt á himninum. Það hnígur niður fyrir sjóndeildarhringinn skömmu eftir að sól er sest.
Horfðu nokkurn veginn í aust-norðaustur fyrir miðnætti í kvöld til að sjá Júpíter í nautsmerkinu. Júpíter mjög bjartur og áberandi en hægra megin við hann er rauði risinn Aldebaran fyrir framan stjörnuþyrpinguna Regnstirnið sem lítur út eins og ör sem bendir til hægri. Aldebaran er í 65 ljósára fjarlægð en Regnstirnið í 150 ljósára fjarlægð.
Kort úr Stellarium hugbúnaðinum
Júpíter er eitt skemmtilegasta fyrirbærið að skoða í gegnum litla áhugamannasjónauka. Allir sýna þeir Galíleótunglin fjögur Íó, Evrópu, Ganýmedes og Kallistó í sjónsviðinu auk skýjabelta á reikistjörnunni sjálfri. Gott er að nota eins mikla stækkun og aðstæður og sjónaukinn leyfa.
Ef þú skoðar reikistjörnuna við miðnætti í kvöld sérðu eitt tunglið, Evrópu, ganga fyrir Júpíter. Þvergangan hefst upp úr klukkan 11 og lýkur upp úr klukkan 01.
Ef þú svifir um í lofthjúpi Júpíters sæirðu Evrópu myrkva sólina en ef þú stæðir á Evrópu sæir þú skugga ístunglsins á reikistjörnunni. Sérðu skuggann í gegnum sjónaukann?
Mynd úr Gas Giants appinu frá Software Bisque
Á Júpíter sjálfum er rauðleitt, pastellitað skýjabelti norðan miðbaugs mest áberandi.
Árrisulir munu geta séð mjög glæsilegan himinn í fyrramálið sem skartar Venusi, Júpíter og Óríon lágt á suðurhimninum.
Kort úr Stellarium hugbúnaðinum
Já, og það má líka búast við ágætum norðurljósum í kvöld.
Námskeið í stjörnufræði og stjörnuskoðun
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn bjóða upp á námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á stjörnufræði og stjörnuskoðun. Sams konar námskeið hafa verið haldin síðustu misseri við góðar undirtektir þátttakenda.
- Byrjendanámskeið í Valhúsaskóla 2. - 3. október 2012 » Nánar um byrjendanámskeiðin
- Krakkanámskeið 29. september 2012 » Nánar um krakkanámskeiðin
Mælum eindregið með þessum skemmtilegu námskeiðum!
- Sævar Helgi
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 14:57 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.