12.7.2013 | 11:53
Vinkaðu Satúrnusi 19. júlí 2013
Föstudagskvöldið 19. júlí 2013 flýgur Cassini geimfar NASA á bakvið Satúrnus frá Jörðu séð. Satúrnus verður þá fyrir sólinni sem gefur einstakt tækifæri til að rannsaka daufustu og dreifðustu hringana en líka koma auga á okkur í geimnum.
Myndin verður tekin milli klukkan 21:27 til 21:42 að íslenskum tíma úr 1,44 milljarða km fjarlægð (búið að gera ráð fyrir 90 mínútna seinkuninni vegna fjarlægðar milli Jarðar og Satúrnusar). Jörðin verður agnarsmá á myndinni enda er hún örlítil í samanburði við sólkerfið.
Aðeins tvær myndir hafa verið teknar áður úr ytra sólkerfinu af Jörðinni.
Myndina hér undir tók Voyager 2 úr 6 milljarða km fjarlægð en á henni sést Jörðin sem fölur blár blettur baðaður geislum sólar.
Hin myndin sést hér undir en hana tók Cassini geimfarið árið 2006 úr 1,49 milljarða km fjarlægð.
Þetta er prýðisgott tækifæri fyrir Jarðarbúa að vinka ljósmyndaranum sem staddur er við Satúrnus og læra meira um þessa merkilegu reikistjörnu, hringana og tunglin. Við höfum ekki skipulagt neina sérstaka dagskrá en látum vita ef það breytist.
Satúrnus er á lofti frá Íslandi séð á þessum tíma, þótt hann sjáist reyndar ekki með berum augum fyrir dagsbirtu. Tunglið verður líka á lofti, lágt á himni, og um að gera að skoða það með sjónauka.
Og þá er ekkert annað að gera en að horfa til himins næstkomandi föstudagskvöld, segja sís og vinka Satúrnusi!
- Sævar Helgi Bragason
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 11:55 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.