19.5.2007 | 20:33
Hver er þessi bjarta stjarna á himninum?
Ég hef verið spurður talsvert að því að undanförnu hvaða stjarna skín svo skært við sólsetur í vest-norðvesturátt. Þessi fallega og áberandi stjarna er reikistjarnan Venus, okkar næsti nágranni í sólkerfinu. Venus er bjartasta fyrirbæri himinsins um þessar mundir á eftir sólinni og tunglinu með birtustigið -4,19. Þessi tala segir flestum væntanlega ekki neitt en hún þýðir í raun það að hægt er að sjá Venus um hábjartan dag, ef þú veist nákvæmlega hvar á að leita og skyggt er á sólina með einhverjum hætti. Mér hefur tekist það með mikilli þolinmæði, reyndar á degi þar sem ég hafði ekkert annað betra að gera og þegar ég gat miðað út frá tunglinu.
Í gegnum stjörnusjónauka sést að Venus er ekki að fullu upplýst heldur að hálfu, líkt og hálft tungl. Sú staðreynd segir okkur að Venus sé nær sólinni en jörðin og var það ein af þeim röksemdum sem sannfærði Galíleó og fleiri góða menn á sínum tíma um ágæti sólmiðjukenningarinnar. Í gegnum sjónauka er fátt annað merkilegt að sjá. Yfirborðið er algjörlega falið undir þykkri skýjahulu sem engin leið er að sjá í gegnum nema með ratsjám. Einn sendiherra jarðarbúa hringsólar einmitt í kringum Venus þessa dagana, evrópska geimfarið Venus Express.
Að endingu. Þegar sólin sest í kvöld, farðu þá út og horfði í vesturátt. Taktu með þér handsjónauka ef þú átt slíkan búnað. Venus og vaxandi tungl verða þá sjáanleg í rauðu húminu, aðeins 1° á milli þeirra. Þetta er mjög falleg samstaða tveggja björtustu fyrirbæra næturhiminsins. Í stjörnufræðihugbúnaðinum Starry Night Enthusiast sést þetta vel.
Hugsaðu þér að á þessari fallegu reikistjörnu rignir brennisteinssýru sem gufar upp áður en regndroparnir ná niður á yfirborðið. Þar er nefnilega álíka heitt og í pizzaofni!
Og Starry Night hugbúnaðurinn fæst hjá Ormsson í Smáralind.
- Sævar Helgi Bragason
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkur: Stjörnuskoðun | Breytt s.d. kl. 21:03 | Facebook
Athugasemdir
Gaman að heyra af því. Margir tóku einmitt eftir þssari glæsilegu samstöðu frá höfuðborgarsvæðinu, og væntanlega víðar af landinu.
Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 21.5.2007 kl. 00:01
Er að fylgjast með þessum vef og vildi kvitta fyrir því. Ég sé það að ég verð að fara að fá mér stjörnusjónauka. Flottar myndir hérna og áhugavert efni. Takk fyrir innlitið og skrifin á mína síðu. Kveðjur.
Margrét St Hafsteinsdóttir, 21.5.2007 kl. 20:14
Margrét, þú getur fengið góða stjörnusjónauka hjá Ormsson í Smáralind.
Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 23.5.2007 kl. 16:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.