6.2.2011 | 16:14
Í fyrsta sinn: Sólin í öllu sínu veldi
NASA birti í dag fyrstu myndina af allri sólinni í heild. Hér eru herlegheitin:
Vá! Þessar glæsilegu mynd af sólinni var tekin með STEREO sólkönnunarförum NASA. Smelltu hér til að sækja mögnuð myndskeið.
STEREO, sem er ekki eitt heldur tvö geimför, var skotið á loft í október 2006. Síðustu fjögur ár hafa geimförin tvö fjarlægst jörðina smám saman og eru þau nú hvort sínum megin sólar í geimnu. Annað er rétt fyrir framan jörðina á braut hennar í kringum sólina en hitt eltir hana fyrir aftan brautarstefnuna. Þessi uppsetning gerir mönnum kleift að sjá báðar hliðar sólar í einu, nokkuð sem aldrei áður hefur verið hægt áður. Þetta er mikilvægt því ef við viljum bæta spár um geimveðrið er mikilvægt að sjá virk svæði á báðum hliðum sólar.
Allir hafa séð áhrif geimveðurs á jörðina. Á heiðskíru kvöldi eru góðar líkur á því að þú sjáir norðurljós stíga dans á himninum. Norðurljósin má rekja til agna sem streyma stöðugt frá sólinni, annað hvort hægt og rólega (samt á um 400 km hraða á sekúndu) eða með miklum látum í sólblossum og kórónuskvettum. Kórónuskvettur og sólblossar eru einmitt það sem við menn hafa dálitlar áhyggjur af því ef mjög orkurík sprenging verður á sólinni getur það haft slæm áhrif á rafveitukerfi á jörðinni, GPS gervitungl og fjarskipti. Þegar öflugur sólblossi verður með tilheyrandi kórónuskvettu verða norðurljósin gjarna ótrúlega falleg.
Tengt efni
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.