Hversu verðmætt er myrkrið? — Fundur um stjörnuhimin og ljósmengun

3071960214_821f08ca4b_z.jpgLaugardaginn 14. janúar næstkomandi fer fram fræðslufundur hjá Græna netinu um stjörnuhimininn og ljósmengun.

Snævarr Guðmundsson landfræðingur og leiðsögumaður er gestur Græna netsins á fundi í Golfskálanum á Seltjarnarnesi um myrkurgæði og ljósmengun. Snævarr hefur kannað ljós og myrkur að næturlagi á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og komist að því meðal annars að ljósmengun í einstökum sveitarfélögum er mest í Kópavogi, sem er þeirra upplýstast – en myrkrið er hinsvegar mest á Seltjarnarnesi og Álftanesi. Á svæðinu öllu er næturbirta, og þar með hulinn næturhiminn – frá fjórum til sjö sinnum meiri en á Þórshöfn, þar sem enn er stjörnubjart þegar vel viðrar að nóttu.

Líklega er höfuðborgin með grannbæjum eitt af upplýstustu byggðarsvæðum jarðar miðað við höfðatölu, og ekkert undarlegt við að Íslendingar vilji hafa ljós í skammdeginu. Ljósmengun fylgja hinsvegar ýmsir ókostir, þeirra mestur sá að næturhiminn hverfur og stjörnur sjást ekki fyrren talsvert utan við miðbæina. Kynslóðir borgarbarna alast því upp án þess að njóta stjarnanna – og fyrir ferðamenn dregur úr aðdráttarafli Reykjavíkur sem ævintýraborgar myrkurs og norðurljósa.

Margt má hinsvegar gera til að draga úr mengun af ljósum án þess að valda óþægindum fyrir umferð, atvinnulíf og sálarástand íbúanna, og er reynt víða erlendis. Hér heima standa Borgnesingar fremstir í flokki við að vinna gegn ofnotkun ljósa í byggð.

Fundur Græna netsins um verðmæti myrkursins hefst kl. 17, eftir sólsetur, í Golfskálanum á Seltjarnarnesi. Eftir fyrirlestur Snævars verður gengið út undir bert loft að líta á himinhnetti og borgarljós einsog veður leyfir.

Allir velkomnir á myrkurfund Græna netsins í Golfskála Ness kl. 17:00 laugardaginn 14. janúar. 

Mynd er af ljósmengun höfuðborgarsvæðisins séð frá Þingvöllum. Mynd: Sævar Helgi Bragason


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband