Curiosity notar borinn í fyrsta sinn og tekur aðra sjálfsmynd

curiosity-sjalfsmynd-2.jpg

Ó-mæ-vá! 

Túristinn Curiosity sendi okkur þetta góðgæti í dag frá Mars, sjálfsmynd númer 2, nú frá Yellowknife flóa þar sem jeppinn er að undirbúa boranir.

Borvélin er listasmíð eins og allt annað á jeppanum. Á honum eru tvær stangir eða nemar sem er þrýst á grjótið með 300-400 Newtona krafti; ekki ósvipuðum krafti og ef maður leggur lófana ofan á borð og reynir að lyfta sér upp. Þannig nær jeppinn góðu „taki“ á grjótinu sem minnkar líkurnar á að hann renni til við borunina. Þetta sést ágætlega hér undir:

0174ml0638000000e1_dxxx.jpg

Svona lítur borvélin út:

0173mr0897000000e1_dxxx_1189384.jpg

Fyrir örfáum dögum var hann notaður í fyrsta sinn og var þá þessi örlitla hola gerð:

0176mh0145003001e1_dxxx.jpg

Mynd: NASA/JPL-Caltech/MSSS

Ljósa æðin er sennilega vatnað kalsíum súlfat, gifs, sem við fjölluðum um í annarri bloggfærslu. Myndin var tekin með MAHLI smásjánni.

Á næstu dögum verða boraðar fleiri holur, allt að 5 cm djúpar. Borinn mylur bergið og býr þannig til sýni sem svo verður flutt í efnagreiningartækin SAM og Chemin. 

Fjöllum betur um það síðar.

- Sævar Helgi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband